Gönguhópur Birnu

ATH.  Birna fer framvegis á laugardögum í þessar gönguferðir!

Næst verður gengið um Kársnesið í Kópvogi þann 11. febrúar. Hist verður fyrst hjá Nettó í Mjódd (að austanverðu) kl. 12. Síðan keyrum við að Digraneskirkju og göngum þaðan um Kársnesið. Gert er ráð fyrir um 2ja klst. göngu og síðan verður farið á kaffihús á eftir. Klæðnaður eftir veðri. 

Bókmenntahópur

Hópurinn ætlar að hittast með Sólveigu Haralds. á Kaffi Merskí Faxafeni 16. febrúar kl. 20. Fólk á að koma með bók með sér sem það hefur verið að lesa og þá verður rætt um þessar bækur.

Leikhús

Laugardaginn 25. febrúar ætlum við að sjá leikritið Fanný og Alexander í Borgarleikhúsinu.  Eva er búin að láta taka frá miða fyrir Parísarfólk. Venjulega þarf maður að borga miðana viku fyrir sýningu.

Bíó,bíó

Fimmtudaginn 9. febrúar ætlum við Parísarfélagar að sjá myndina Iron Lady í Laugarásbíói kl. 20. Mæting í Laugaási kl. 19 (þeir sem vilja) og fengið sér eitthvað að borða á undan sýningu.

Page 1 of 2

Nýjar myndir

Paris á Facebook

Paris á Facebook

Paris dagatal

February 2012
S M T W T F S
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 1 2 3