Sunnudagsganga – hópstjórar: Hrafnhildur Einarsd. sími 824-0774 og Sigrún Edvardsd. sími 895-5839
Vikulegt bæjarrölt. Lagt af stað kl. 13:30 frá Hallgrímskirkju, Eiríksgötumegin.
Litið er inn á listasöfn, sýningar eða aðra auglýsta viðburði og jafnvel ekið yfir í aðra bæjarhluta eða önnur bæjarfélög á höfuðborgarsvæðinu.
Í lokin hefur fólki fundist upplagt að fá sér kaffihressingu á einhverju kaffihúsinu. Þegar Ferðahópurinn er með sína mánaðarlegu utanbæjargönguferð á sunnudegi fellur þessi ganga niður eða félagar hittast og ganga án hópstjóra.
Eins að sumrinu þegar Parísarfélagar eru saman í helgarferðalögum.
Ekki þarf að skrá sig í þessar sunnudagsgöngur – aðeins mæta.